Lögreglufréttir eru næst á dagskrá – byrja núna.
Lögreglustöð 1 – Hverfisgötu
Ökumaður stöðvaður eftir að hafa ekið ógætilega að mati lögreglumanna. Þegar athugað var með ástand og réttindi ökumanns þá kom í ljós að hann reyndist sviptur ökuréttindum og hann var einnig grunaður um akstur undir áhrifum vímuefna. Við öryggisleit á manninum fundust svo meint fíkniefni. Ökumaðurinn var handtekinn og fluttur á lögreglustöð í hefðbundið ferli.
Tilkynnt um umferðarslys þar sem ökumaður var grunaður um akstur undir áhrifum áfengis, hann var handtekinn og fluttur á lögreglustöð.
Það voru höfð afskipti af erlendum aðila sem gat ekki framvísað lögmætum skilríkjum, né gert grein fyrir dvöl sinni á landinu. Hann var handtekinn og fluttur á lögreglustöð. Málið í rannsókn.
Tilkynnt um slagsmál í hverfi 105. Þegar lögregla kom á vettvang þá var einn aðili æstur og hafði í hótunum við nærstadda. Hann var handtekinn og fluttur á lögreglustöð þar sem hann var með öllu óviðræðuhæfur. Hann var vistaður sökum ástands.
Mörgum aðstoðarbeiðnum vegna ölvunarástands var sinnt.
Lögreglustöð 2 – Hafnarfirði
Aðstoðarbeiðnum sinnt
Lögreglustöð 3 – Kópavogi
Tilkynnt um fjögurra bíla árekstur í hverfi 109. Minniháttar áverkar.
Aðstoðarbeiðnum sinnt.
Lögreglustöð 4 – Vínlandsleið
Tilkynnt um eld í ökutæki sem var lagt í bifreiðastæði. Slökkvilið mætti á vettvang og slökkti eldinn fljótt.
Ökumaður stöðvaður sem reyndist sviptur ökuréttindum og grunaður um akstur undir áhrifum áfengis. Hann var handtekinn og fluttur á lögreglustöð í hefðbundið ferli.