Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út í gær vegna vopnaðs ráns í heimahúsi. Þetta er eitt þriggja rána sem lögreglan þurfti að hafa afskipti af í gær samkvæmt dagbók hennar.
Hvorki fæst uppgefið hvenær né hvar hið vopnaða rán átti sér stað en gerandi var handtekinn á staðnum og færður í fangageymslur.
Þá eru tveir menn grunaðir um rán í apóteki í Hlíðunum en þegar lögregla kom á vettvang voru mennirnir farnir af vettvangi. Þá var lögreglan kölluð til vegna ráns í verslun í miðborginni og var viðkomandi á staðnum þegar lögreglan kom.