„Það er erfiðara en orð fá lýst að ganga í gegnum það sem við erum að upplifa núna. Það er enn þyngra þegar fjölmiðlar flytja rangar og villandi fréttir af atvikum og ganga nærri friðhelgi einkalífs okkar með myndbirtingum og síendurteknum hringingum í okkur, nánustu vini og ættingja,“ skrifa Sandra, Hilmar, Pétur og Karen börn hjónanna sem um helgina urðu fórnarlömb Brynjars Þórs Guðmundssonar bakara sem varð móður barnanna að bana og stórslasaði föður þeirra. Morðinginn fannst sjálfur látinn á vettvangi. Lögreglan hefur sagt að ekki hafi verið um sjálfsvíg að ræða.
Fjölmiðlafár hefur verið ríkjandi á Blönduósi og hefur verið setið um þá sem eiga aðild að harmleiknum. Morgunblaðið sagði frá því í morgun að notuð hefði verið afsöguð haglabyssa við verknaðinn. Það hefur ekki verið staðfest.
Brynjar Þór hafði áður verið handtekinn, vopnaður utan við heimili hjónanna. Hann hefur átt við andlega erfiðleika að stríða og meðal annars verið lagður inn á geðdeild. Brynjar Þór starfaði um tíma hjá Vilkó, fyrirtæki hjónanna. Hann rak seinna bakarí á Blönduósi en sá rekstur endaði illa. Engin skýring hefur komið fram um það hvað liggur að baki illvirkinu.
Börnin segja fjölmiðla hafa flutt rangar og villandi fréttir af atvikum og þeir gangi nærri friðhelgi einkalífs þeirra með myndbirtingum og endurteknum hringingum í þau, nánustu vini og ættingja.
„Þess vegna viljum við góðfúslega biðja fjölmiðla um að virða friðhelgi einkalífs okkar, fjölskyldu og heimilis. Við þurfum frið til þess að takast á við þetta áfall, til að syrgja móður okkar og hlúa að föður okkar. Því í dag er ekkert mikilvægara en að hann nái heilsu á ný,“ segja börnin.
Yfirlýsingin í heild sinni:
Á sunnudaginn breyttist líf okkar til frambúðar og verður aldrei aftur eins. Við syrgjum móður okkar og faðir okkar er alvarlega særður á spítala. Okkur hafa borist hlýjar kveðjur og stuðningur úr öllum landshornum. Fyrir það erum við þakklát.
Það er erfiðara en orð fá lýst að ganga í gegnum það sem við erum að upplifa núna. Það er enn þyngra þegar fjölmiðlar flytja rangar og villandi fréttir af atvikum og ganga nærri friðhelgi einkalífs okkar með myndbirtingum og síendurteknum hringingum í okkur, nánustu vini og ættingja.
Þess vegna viljum við góðfúslega biðja fjölmiðla um að virða friðhelgi einkalífs okkar, fjölskyldu og heimilis. Við þurfum frið til þess að takast á við þetta áfall, til að syrgja móður okkar og hlúa að föður okkar. Því í dag er ekkert mikilvægara en að hann nái heilsu á ný.
Allt sem við höfum að segja kemur fram hér að ofan. Við munum ekki tjá okkar frekar. Við ítrekum að við biðjum fjölmiðla að virða það.