Óvenju mörg umferðaróhöpp hafa orðið í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum á undanförnum dögum samkvæmt tilkynningu frá LSS.
Ökumaður sem ók inn á hringtorgið við gatnamót Reykjanesbrautar og Þjóðbrautar hafnaði uppi á því og ók niður umferðarmerki með þeim afleiðingum að bifreiðin valt á hliðina. Hann slapp án teljandi meiðsla.
Annar ökumaður ók aftan á bifreið á Njarðarbraut. Hann var grunaður um neyslu áfengis og fíkniefna.
Þá þurfti að flytja karlmann á Landspítala í Fossvogi eftir að hann missti mótorhjól sitt úr af Nesvegi. Ekki er vitað um líðan hans.
Nokkur umferðaróhöpp til viðbótar þessum urðu, en engin alvarleg slys á fólki.
Þá hafa nokkrir ökumenn verið kærðir fyrir hraðakstur, einkum á Reykjanesbraut.