Fjölnir Geir Bragason betur þekktur sem Fjölnir Tattoo er látinn.
Fjölnir var einn þekktasta húðflúrari landsins og var reyndari en flestir aðrir íslenskir húðflúrarar, enda afbragðs góður í sínu starfi. Þá hefur Fjölnir verið áberandi í íslensku samfélagi í fjölmörg ár og átti magnað lífshlaup.
Vinir og ættingjar Fjölnis minnast hans í fallegum orðum á veraldarvefnum í dag. Ljóst er að Fjölnir snerti hjörtu margra og verður sárt saknað.
Mannlíf vottar aðstandendum Fjölnis innilegar samúðarkveðjur, blessuð sé minning Fjölnis Geirs Bragasonar