- Auglýsing -
Fjölskyldur farþeganna sem voru um borð í flugvélinni sem fannst í Þingvallavatni í gær eru á leið til landsins. Þá eru sumar þeirra komnar nú þegar en þetta staðfesti Oddur Árnason, yfirlögregluþjónn á Suðurlandi í samtali við Morgunblaðið í dag.
Farþegarnir komu frá Bandaríkjunum, Hollandi og Belgíu og ætluðu þau að myna íslenska náttúru.
Þá hefur áður komið fram að ferðamennirnir eru á þrítugsaldri. Lögreglan á suðurlandi er í samskiptum við fjölskyldurnar og mun veita frekari upplýsingar í samstarfi við þau.