Á miðnætti tekur í gildi tíu manna samkomubann og á bannið við alla sem eru fæddir fyrir árið 2015.
Þetta kom fram á blaðamannafundi sem ríkisstjórnin hélt í dag en Kári Stefánsson hefur sagt fjórðu bylgja Covid komna til landsins.
Takmarkanir gilda um allt land og í þrjár vikur til að byrja með. Munu takmarkanirnar gilda um allt land og í þrjár vikur.
Þetta hefur víðtækar afleiðingar fyrir alla í samfélaginu og er um sömu aðgerðir og gripið var til þegar þriðja bylgjan reið yfir.
BANNAÐ!
- Staðnám á grunnskóla-, framhaldsskóla- og á háskólastiginu verður óheimilt frá og með deginum í dag fram til 1. apríl.
- Allar samkomur þar sem fleiri en 10 manns koma saman
- Trú og lífsskoðunarfélög mega taka á móti 30 gestum
- Sund- og baðstaðir eru loka
- Lííkamsræktarstöðvar líka
- Íþróttir barna þar sem hætta er á snertismiti bannaðar
- Leikhús og kvikmyndahús skella í lás
- Skemmtistaðir, krár og spilakassar loka
- Veitingastaðir mega hafa opið til 22 EN með hámark 20 gestum
- Verslanir mega taka á móti að hámarki 50 manns, færri í minni verslunum
- Hársnyrtistofur og snyrtistofur mega þó áfram hafa opið
Mjög smitandi og alvarleg einkenni
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir blikur á lofti og nauðsynlegt að grípa fast í taumana. Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra, segir að breska afbrigðið sem valdið hefur hópeinkennum, sé mjög smitandi og valdi verulega alvarlegum einkennum.
Sautján greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Fjórtán þeirra sem greindust voru í sóttkví, en þrír utan sóttkvíar. Ekki hafa svo margir greinst innanlands á einum degi síðan 30. nóvember.