- Auglýsing -
Líkt og síðustu þrjá sólarhringa greindist enginn með kórónaveiruna síðasta sólarhring. Þannig hefur ekkert smit greinst fjóra daga í röð.
Þetta kemur fram í nýjustu tölum á upplýsingasíðu Landlæknisembættisins og almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra, covid.is. Virk smit á landinu öllu eru sex talsins og staðfest smit á heildina 1.802 samtals.
Í dag liggur enginn inni á sjúkrahúsi vegna COVID-19.