- Auglýsing -
Nóttin var með eindæmum róleg hjá lögreglu, ef marka má dagbók. Í morgunsárið gistu þó fjórir í faðmi lögreglunnar fyrir ótilgreindar sakir.
Umferðaróhapp varð í austurborginni. Minniháttar slys á fólki.
Lögregla brást við tilkynningu um menn í annarlegu ástandi á Seltjarnarnesi og veitti þeim tiltal. Eftir spjall við lögreglu héldu mennirnir sína leið og segir ekki meira af ferðum þeirra.
Umferðaróhapp varð í Hafnarfirði. Minniháttar slys á fólki.
Búðaþjófur lét greipar sópa í verslun í Kópavogi.