- Auglýsing -
Fjórir Íslendingar eru í sóttkví í Víetnam vegna COVID-19 veirunnar. RÚV greindi fyrst frá. Þar segir að Íslendingarnir hafa verið í sambandi við borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins og María Mjöll Jónsdóttir, upplýsingafulltrúi ráðuneytisins staðfestir það.
Ekki er vitað hversu lengi fólkið hefur verið í sóttkví né hvar í Víetnam það er statt.