Smit kórónuveirunnar eru enn í mikilli uppsveiflu en greindust 120 manns í gær með veiruna. Tæplega helmingur smitaðra var í sóttkví við greiningu en fimm greindust á landamærunum.
Af þeim sem greindust síðasta sólarhring voru 52 fullbólusettir og 42 óbólusettir. Flestir smitaðra í dag eru á aldrinum 6 til 12 ára en eru alls 314 á þessum aldri smitaðir í einangrun.
Þá liggja nítján manns inn á sjúkrahúsi með kórónuveiruna, þar af eru tveir á gjörgæsludeild.
Nýjustu tölur smita og annars efnis í tengslum við Covid-19 má nálgast á covid.is