Utanríkisráðherra hvetur Íslendinga, sem eru staddir erlendis, að huga að heimkomu sem allra fyrst, hafi þeir það í hyggju á annað borð, því sá möguleiki sé fyrir hendi að öllum flugleiðum til landsins verði lokað um næstu mánaðarmót.
„Þeir Íslendingar sem hyggja á heimkomu þurfa að snúa heim strax, skrá sig í gagnagrunn borgaraþjónustunnar og hafa beint samband ef þeir eru strandaglópar. Um mánaðamótin gætu allar flugleiðir hafa lokast,” skrifar Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra í færslu á Facebook-síða íslenska utanríkisráðuneytisins. Tilmælin má rekja til baráttu stjórnvalda, hérlendis sem og erlendis, gegn útbreiðslu hinnar skæðu kórónuveiru sem veldur COVID-19 sjúkdómnum.
Bendir ráðherrann á að nú þegar séu flugsamgöngur víða um heim afar takmarkaðar, en eins og kunnugt er setti Donald Trump Bandaríkjaforseti 30 daga bannn við ferðalög frá Evrópu aðfaranótt 12. mars vegna COVID19. Sagðist hann ætla að gera allt sem hann getur til að vernda líf og heilsu bandarískra ríkisborgara. Hafa ýmis önnur ríki gripið til svipaðra aðgerða, lokað flugvöllum, höfnum og landamærum sínum til að hefta útbreiðslu veirunnar.
„Frá því um síðustu helgi hefur borgaraþjónusta utanríkisþjónustunnar svarað um 2 þúsund erindum og miðlað upplýsingum til rúmlega 9 þúsund manns sem skráðir eru í gagnagrunn borgaraþjónustunnar sem fór í loftið 25. febrúar vegna COVID-19,“ skrifar Guðlaugur Þór ennfremur.