- Auglýsing -
Jófríður Ákadóttir mun flytja lágstemmda útgáfu af tónlist sinni á sunnudaginn.
Tónlistarkonan Jófríður Ákadóttir (JFDR) flytur lágstemmdar útgáfur af tilraunakenndri popptónlist sinni á næstu stofutónleikum á Gljúfrasteini á sunnudaginn, 7. júlí.
Hún mun spila á gítar ásamt systur sinni Ásthildi sem mun spila á píanó. Tónleikarnir hefjast klukkan 16.00.
Stofutónleikar Gljúfrasteins eru haldnir hvern sunnudag frá júní og út ágúst. Miðar eru seldir í safnbúð Gljúfrasteins samdægurs og kosta 2.500 kr. Ókeypis er fyrir börn á leikskólaaldri. Dagskrá stofutónleikanna í heild sinni má sjá hér.