Þriðjudagur 24. desember, 2024
2.8 C
Reykjavik

Formaður Verkalýðsráðs Sjálfstæðisflokksins: „Vinstri menn öfundast út í velgengni annarra“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Er píparinn þinn skattsvikari? spyr formaður Verkalýðsráðs Sjálfstæðisflokksins Kristinn Karl Brynjarsson í grein.

„Lokum ehf-gatinu með aðferðum sem tíðkast á hinum Norðurlöndunum til að koma í veg fyrir að launagreiðslur séu ranglega taldar fram sem fjármagnstekjur.“

Bætir þessu við:

„Tilvitnaði textinn hér að ofan, er ein af tekjuöflunartillögum Samfylkingar í svokölluðu plani þeirra. Pípari eða annars konar sjálfstætt starfandi iðnaðarmaður sem stofnar ehf-félag um rekstur sinn, greiðir sér, samkvæmt upplýsingum á heimasíðu Skattsins, laun upp á 817.000. kr. á mánuði í formi reiknaðs endurgjalds, sé hann einn eða með annan starfsmann í vinnu hjá sér. Aukist umsvif píparans svo mikið að hann þurfi að bæta við sig starfsmanni eða starfsmönnum, hækkar þetta reiknaða endurgjald, samkvæmt reglum sem einnig má finna á heimasíðu Skattsins.“

Hann bætir því við að „af þessum 817.000 kr. fara 203.960 kr. í tekjuskatt og útsvar eða tæplega 25% af heildarlaununum. Af þessum launum greiðir svo félagið auðvitað tryggingargjald 6,35%. Þar sem þessi pípari, eigandi félagsins, vill eiga eithvað til efri áranna, ákveður hann að félagið greiði 10% af upphæði heildarlauna í mótframlag í lífeyrissjóð. Gjaldstofn tryggingargjaldsins verður því 817.000 kr. plús mótframlagið 81.700 kr. eða 898.700 kr. Tryggingargjaldið verður því 57.067 kr. Fari svo að téður pípari geti greitt sér út arð af rekstri ehf-félags síns, er það vegna þess að félagið er rekið með hagnaði.“

Kristinn segir einnig að „af hagnaði félagsins er greiddur 20% tekjuskattur lögaðila og svo 22% fjármagnstekjuskattur af arðinum. Það má halda því til haga, svona í framhjáhlaupi, að önnur tekjuöflunartillaga Samfylkingarnar gengur út á hækkun fjármagnstekjuskatt í 25%.“

- Auglýsing -

Bætir þessu við:

„Það er því ansi frjálsleg túlkun, þegar að Samfylkingin túlkar arðgreiðslur til eiganda ehf-félags vegna hagnaðar þess sem launatekjur. Enda eru arðgreiðslur, ekki hluti launakjara. Óíkt því sem að kaupréttur hlutabréfa í fyrirtækjum sannarlega er. Eins og formanni Samfylkingarnar ætti, af gefnu tilefni, nú að vera fullkunnugt um. Þessi frjálslega túlkun sýnir kannski bara fyrst og fremst að Samfylkingin er, þrátt fyrir að umbúðirnar eigi að sýna annað, bara klassískur gamaldags vinstri flokkur.“

Bætir við að lokum:

- Auglýsing -

„Vinstri menn hafa gjarnan öfundast út í velgengni annarra en þeirra sjálfra og haft öll sín horn í síðu einkaframtaksins. Fyrir velgengni skuli ætíð refsað með hærri og nýjum sköttum!“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -