„Ég geymi til dæmis jólapappír og jólaborða og nota aftur næstu jól“ segir Elva Hrönn Hjartardóttir, neytandi vikunnar, í nýjasta tölublaði Mannlífs. Elva Hrönn er sérfræðingur á þróunarsviði hjá VR, og er í framboði til formanns VR í kosningunum sem fara þar fram í mars. Ég fer svo með föt sem við erum hætt að nota í fatasöfnun eða sel í hringrásarbúðum (second hand) og versla líka oft þar. Föt eru minn helsti veikleiki. Þetta er eitthvað sem ég þarf að taka mig verulega á í, því fataiðnaðurinn er einn óumhverfisvænsti iðnaðurinn sem til er, að ég tali nú ekki um aðstæður verkafólks sem framleiðir fötin, sem oftar en ekki eru hörmulegar.