Turtildúfurnar Svala Björgvinsdóttir og Kristján Einar Sigurbjörnsson standa í flutningum þessa dagana. Sögðu þau frá fyrirhugðum flutningum í færslu á Facebook í síðustu viku en þar kom jafnframt fram að þau ætluðu sér ekki að flytja langt heldur halda sig við Hafnarfjörðinn.
,,Við erum mega spennt að flytja í nýju íbúðina sem er bara rétt hjá auðvitað því við elskum Hafnarfjörðinn,“ sagði Svala.
Í dag deildi Svala svo myndskeiðum á Instagram reikningi sínum af sér ásamt fríðu föruneyti, bera heila búslóð inn í nýju íbúðina. ,,Sjá ykkur snillingar! Bestu vinir í heimi sko!“ mátti heyra Svölu segja með miklu þakklæti í einu myndskeiðinu. Þar beindi hún orðum sínum að þeim Haffa Haff, söngvara og dansara, Anítu Briem, leikkonu, og Aðalheiði Elínu, fatahönnuði, sem voru í óðaönn að bera inn hjónarúmið.
Kristján Einar var fjarri góðu gamni þar sem hann starfar sem háseti og er staddur úti á sjó um þessar mundir.
Það er svo sannarlega gott að eiga góða vini.