Laugardagur 7. september, 2024
9.7 C
Reykjavik

Friðlýsing í Flatey: „Markmiðið er að tryggja rannsóknir og vöktun á lífríki svæðisins“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

„Meginmarkmið friðlýsingar­innar er að vernda sérstætt og fjölbreytt lífríki svæðisins og búsvæði fugla, einkum varpsvæði fágætra fuglategunda; þórshana, kríu og lunda. Friðlandið hefur hátt vísinda- og fræðslugildi og er vel þekkt á meðal vísindamanna og fuglaáhugafólks. Búsvæði og lífríki í fjörum og í sjó er afar fjölbreytt og mikilvægt fæðusvæði margra fuglategunda. Náttúrufegurð svæðisins er einnig mikil og þar finnst meðal annars marhálmur sem er sjaldgæfur á landsvísu.

Það er fallegt í Flatey.

Markmið með friðlýsingunni er einnig að tryggja rannsóknir og vöktun á lífríki svæðisins, með áherslu á búsvæði og afkomu varpfugla og að tryggja fræðslu um fuglalífið í eynni og nágrenni.“

Þetta segir Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfis- og auðlindaráðherra sem undirritaði nýlega auglýsingu um stækkun friðlandsins í Flatey, en friðlandið er innan verndarsvæðis Breiðafjarðar sem er verndað með sér lögum.

Og bætir við:

„Flatey er óumdeilanlega perla Breiðafjarðar. Náttúran sjálf segir sína sögu um það hvað gerði eyna að ákjósanlegri miðstöð mannlífs við Breiðafjörð. Þar er merkileg saga búsetu þar sem samspil manns og náttúru var og er í jafnvægi. Líffræðileg fjölbreytni svæðisins er mikil enda fjölskrúðugt fuglalíf í eynni sem byggir afkomu sína á fjölbreyttu fæðuframboði á landi, í fjörum og í sjó. Það er því mikilvægt fyrir komandi kynslóðir, okkur sjálf og gesti okkar að tryggja verndun perlu eins og Flateyjar.“

Heimild: bbl.is

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -