Alþingi mun greiða atkvæði um þungunarrof í dag gangi dagskrá þingsins eftir.
Þingfundur hefst klukkan 15.00 í dag en þriðja umræða málsins fer fram á þinginu. Málið hefur verið afar umdeilt. Þrjár breytingatillögur á frumvarpinu verða til atkvæðagreiðslu.
Páll Magnússon, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur lagt til breytingu um að heimild til þungunarrofs verði fram að 20. viku í stað 22. viku.
Anna Kolbrún Árnadóttir, þingkona Miðflokksins, leggur til að heimildin verði til 18. viku.
Halldór Mogensen, þingkona Pírata og formaður velferðarnefndar, leggur til breytingatillögu á gildandi lögum þar sem kafli um fóstureyðingar fellur á brott. Heimild til þungunarrofs er nú að finna í lögum um ráðgjöf og fræðslu varðandi kynlíf og barneignir og um fóstureyðingar og ófrjósemisaðgerðir. Kafli um fóstureyðingar verður felldur úr lögunum ef tillagan er samþykkt.