Maður á rafskútu féll og slasaðist í miðborg Reykjavíkur í nótt. Maðurinn reyndist vera undir áhrifum áfengis. Hann var fluttur á slysadeild í sjúkrabifreið en meiðsli hans reyndust vera minni en upphaflega var talið. Mál hans er til rannsóknar hjá lögreglunni.
Tilkynnt um þjófnað úr verslun í Múlahverfinu. Ekki er upplýst dagbók lögreglu hvort lögreglan hafgi komist á spor búðarþjófsins. Annar búðaþjófnaður áttu sér stað í Breiðholtinu. Óljóst er með lyktir þess máls. Í Hlíðunum urðu íbúar varir við dularfullar mannaferðir og lét lögregluna vita.
Dópsalar voru að störfum í miðbæ Reykjavíkur. Lögreglan stóð þá að verki við lögbrot og handtók tvo í þágu rannsóknar málsins.
Ökumaður á hraðferð í Kópavogi reyndist vera á 129 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði er 80 kílómetrar. Vettvangsskýrsla rituð og á ökumaður bifreiðarinnar von á himinhárri sekt vegna afbrotsins. Höfð voru afskipti af ökumanni bifreiðar sem reyndist sviptur ökuréttindum. Vettvangskýrsla rituð og málið komið í hefðbundið ferli.