Ökumaður rafskútu var handtekinn vegna gruns um akstur undir áhrifum áfengis. Sá drukkni hélt ekki jafnvægi á rafskútunni og steyptist á höfuðið með þeim afleiðingum að hann slasaðist. Rafskútumaðurinn var laus úr haldi lögreglu eftir að honum hafði verið dregið blóð.
Hnífamaður veittist að fólki í miðborg Reykjavíkur. Lögreglan var kölluð til og náði hún að stöðva ofbeldismanninn. Blessunarlega er enginn slasaður eftir ágang mannsins. Hnífamaðurinn var læstur inni í fangaklefa þar sem hann býður þess að nýr dagur rísi og hann verði látinn svara til saka.
Maður nokkur var staðinn að því að stela reiðhjóli í miðborg Reykjarvíkur. Brotist var inn í bifreið á sömu slóðum.
Óprúttnir aðilar köstuðu grjóti í bifreið á svæði Hafnarfjarðarlögreglu. Óljóst er með ástæðu eða tilgang skemmdarverksins.
Lögregla hafði afskipti af þremur leigubifreiðum. Tvær bifreiðanna uppfylltu ekki gæða og tæknikröfur og eiga því von á sekt.