Lögregla handtók í gærkvöldi tvo menn eftir að tilkynning barst um að aðilarnir hefðu ekið á tré á Laugavegi. Báðir mennirnir voru í annarlegu ástandi og því vistaðir í fangaklefa þar til þeir eru viðræðuhæfir. Síðar um kvöldið stöðvaði lögregla ökumann sem grunaður er um að dvelja ólöglega í landinu. Engan stimpil var að finna í vegabréfi hans og var hann vistaður í fangaklefa vegna rannsóknar málsins.
Í Kópavogi hafði ökumaður samband við lögreglu og tilkynnti að hann hafi ekið á. Þegar lögregla kom á vettvang um í ljós að maðurinn var undir áhrifum vímuefna. Var hann vistaður í fangaklefa. Brotist var inn í fyrirtæki seint í gærkvöldi og lögregla kölluð til. Talið er að töluverðu magni peninga hafi verið stolið í innbrotinu og er málið í rannsókn. Þá sinnti lögregla reglubundnu umferðareftirliti og stöðvaði nokkra ökumenn sem reyndust vera undir áhrifum vímuefna.