Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, hefur beðið fimmmenningana sem sýknaðir voru í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu, afsökunar á því ranglæti sem þeir máttu þola við meðferð málsins.
Sævar Marinó Cieslski, Tryggvi Rúnar Leifsson, Kristján Viðar Júlíusson, Guðjón Skarphéðinsson og Albert Klahn Skaftason voru allir sýknaðir í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu í Hæstarétti í gær.
Ríkisstjórn Íslands kom saman til fundar í morgun og þar var málalyktum í þessu umdeildasta sakamáli Íslandssögunnar fagnað. Í yfirlýsingu frá ríkisstjórninni, sem Katrín skrifar undir, segir:
Ég beini orðum mínum til fyrrum sakborninga, aðstandenda þeirra og annarra sem átt hafa um sárt að binda vegna málsins. Fyrir hönd ríkisstjórnarinnar bið ég ykkur afsökunar á því ranglæti sem þið hafið mátt þola.