Grétar Þór Sigurðsson, fyrrverandi keppandi Gettu Betur fyrir hönd MR, er ekki hrifinn af pistli sem birtist í Morgunblaðinu um helgina. Pistilinn skrifar Orri Páll Ormarsson.
Í pistlinum undrar Orri sig á vanþekkingu keppenda Gettu Betur þegar kemur að listgreinum, þá sérstaklega tónlist.
Svona hefst pistillinn: „Ég ber djúpa virðingu fyrir keppendum í spurningaþættinum Gettu betur! í Ríkissjónvarpinu; þeir eru upp til hópa nánast ólöglega vel að sér um ótrúlegustu hluti. Sem fyrr vantar þó eitt svið upp á – listir. Þar koma spyrjendur iðulega að tómum kofunum hjá liðunum.“
Í pistlinum eru svo nokkur dæmi tekin. Þar segir meðal annars: „Tólfunum kastaði þó fyrst á dögunum þegar þrír gúmmelaðigæjar úr Duran Duran birtust á skjánum og Gettubetrungar voru beðnir að nafngreina hljómsveitina. Annað liðið sagði pass en hitt skaut á Metallica. Jesús, María og Jósef. Við liggur að fólk sem ekki þekkir muninn á Duran Duran og Metallica eigi skilið lögsókn.“
Grétar Þór vekur athygli á pistlinum á Twitter og spyr um hvaða „drullu“ sé um að ræða.
„Megininntakið í þessum pistli er að menntaskólanemar þekkja ekki einhverjar afdankaðar hljómsveitir sem eru í uppáhaldi hjá pistlahöfundi. Hann hefur ekkert fyrir sér í hugleiðingum sínum um listasöguna þar sem ekki hefur reynt á það – það eru getgátur. Ergo: Greinin er drulla.“
Hvaða drulla er þetta, í alvöru talað? pic.twitter.com/cUE8SmmUev
— Grétar Þór (@gretarsigurds) March 3, 2019
Mynd / Skjáskot af Twitter