- Auglýsing -
Maður á sjötugsaldri lést af völdum Covid-19 veirunnar á gjörgæsludeild Landsspítalans. Vísir greindi frá andlátinu fyrir stundu.
Um er að ræða fyrsta andlátið á Íslandi í fjórðu bylgju faraldursins. Alls hafa þá 31 einstaklingar látist af völdum veirunnar frá upphafi hennar.
Fjórir liggja nú á gjörgæsla með Kórónuveiruna en 16 aðrir liggja á sjúkrahúsi af sömu ástæðu.