Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir hjá Landlæknisembættinu telur að nýja kórónaveiran sem getur valdið COVID-19 sjúkdómi geti gengið yfir á einum til tveimur mánuðum. Þetta kemur fram í Fréttablaðinu.
Hann tekur þó fram að það erfitt að segja til um nákvæmlega hversu langan tíma það mun taka veiruna að ganga yfir hér á landi. Þórólfur segir að nú sé verið að vinna að því að fækka smitum.
Magnús Gottfreðsson smitsjúkdómalæknir sagði í febrúar að nú sé verið að leggja áherslu á að hægja á útbreiðslunni og þannig dreifa álaginu á heilbrigðiskerfi heimsins.
Í gærkvöldi voru þrjú ný COVID-19 smit staðfest á Íslandi og eru þá alls níu Íslendingar smitaðir af veirunni.