Margrét Kristmannsdóttir, framkvæmdastjóri Pfaff og fyrrverandi varaformaður Samtaka atvinnulífsins (SA) segir að Samherjamálið láti viðskiptalífið í heild sinni líta illa út.
Margrét vill að samtökin stígi fram fyrir hönd atvinnulífsins og lýsi því yfir að mál Samherja sé með öllu óásættanlegt og að svona starfi ekki alvöru fyrirtæki. Margrét var í viðtali í Morgunútvarpinu í morgun og Kjarninn fjallaði einnig um málið.
Margrét segir að þegar svona alvarleg mál komi upp þá SA að stíga fram og tala fyrir hönd atvinnulífsins.
Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi sendu frá sér yfirlýsingu daginn eftir Kveiksþáttinn. Í yfirlýsingunni kom fram að þetta mál væri mjög alvarlegt og gæti ekki aðeins skaðað orðspor íslensks sjávarútvegs heldur einnig orðspor Íslands í heild sinni.
„Við vitum alveg að Samherjamenn eru ekki skaplausir menn. Þannig það er miklu betra vera í liði með Samherjamönnum heldur en á móti,“ segir Margrét aðspurð af hverju hún telji að SA hafi ekki séð sér fært að tjá sig um þetta mál og að sjávarútvegurinn hafi að hennar mati alltaf haft miklu meira vægi innan samtakanna en atkvæðavægi þeirra hefur sagt til um.
Hún bendir enn fremur á að sjávarútvegurinn sé með 10 til 15 prósent vægi innan SA. „Það eru 85 prósent aðrir í atvinnulífinu sem vilja að SA stígi fram og lýsi því yfir að þetta sé með öllu óásættanleg og að svona starfi ekki alvöru fyrirtæki.“
Munur á að græða peninga og vera gráðugur
Margrét segir jafnframt að það sé himinn og haf á milli þess að græða peninga og vera gráðugur. Hún segir að Samherjamálið sýni svo mikla græðgi og að það sé ein af ástæðunum af hverju íslenska þjóðin sé svona reið.
„Þarna fer eitt ríkasta fyrirtæki Íslands að arðræna eitt fátækasta land í heimi. Eitthvað sem við getum ekki sætt okkur við og engan veginn samþykkt,“ segir Margrét og bendir á að Samherji hafi getað rekið arðbæra útgerð í Namibíu en einnig greitt skatta og stutt uppbyggingu í landinu. „Namibía hefði getað verið þeirra Siglufjörður.“
Aðspurð um tölvupóst Síldarvinnslunnar til Samherja um ráðleggingar um hvernig væri best að blekkja Grænlendinga, greint var frá í dag, segir Margrét þetta vera hryllingssögu. „Ef fleiri svona mál koma upp þá er þetta eitthvað sem er miklu alvarlega en við gerum okkur grein fyrir í dag.“
Sjá einnig: Gunnþór bað Samherjamenn um ráð til að blekkja Grænlendinga: „Reyna ná kvótum og goodwill af stjórnvöldum“