Knattspyrnukappinn Garðar Gunnlaugsson er eins og flestir aðrir meðvitaðir um stöðu mála hjá KSÍ, og lét þessi orð falla á samfélagsmiðli:
„Jæja strákar, núna er búið að segja upp minnsta hlutanum af vandamálinu, stjórn KSÍ. Vandamálið liggur þó ekki þar, vandamálið á stóran uppruna í þessari „toxic“ menningu sem við höfum allir alist upp í sem íþróttamenn, hvort sem áhuga- eða atvinnumen.“
Garðar lítur á nýliðnaa atburði hjá KSÍ sem möguleika en ekki sem endalok:
„Við höfum tækifæri núna til þess að breyta þessari menningu og sjá til þess að ungir iðkendur alist upp í heilbrigðara umhverfi þar sem kvenfyrirlitning og mismunun gagnvart minnihlutahópum heyri sögunni til. Þetta er ekki „overnight“ breyting, þetta mun taka tíma en látum þetta byrja hjá okkur! Verum fyrirmyndir! Íþróttahreyfingin þarf að fara í naflaskoðun og ráðast á rót vandans, það þýðir ekki bara að snyrta toppinn af trénu, meiri fræðsla til iðkenda og meiri þjálfun leiðbeinenda er lágmarkskrafa,“ voru lokaorðin Garðars.