Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, segir það hafa tekið nokkuð langan tíma að finna þá sem létust í eldsvoðanum sem kom upp í húsi Bræðraborgarstígs og Vesturgötu. „Já, það gerði það. Það var mikill eldur í húsinu þegar við komum á vettvang,“ segir Jón Viðar í samtali við Mannlíf. Hann segir að strax hafi verið ljóst að um stórt verkefnið var að ræða.
„Við fórum strax í það að bjarga fólki út úr húsinu. Við fáum svo að vita að það séu tveir enn þá inni í húsinu og við sendum inn reykkafara og töluvert af þeim. Við náum að leita vel á annarri hæð og erum fljótlega töltölulega örugg um að það sé enginn þar,“ útskýrir Jón Viðar.
„Við náum einnig að leita í hluta af risinu en á einum tímapunkti verða reykkafarar að hörfa út vegna hita og hættu á að gólfið myndi gefa sig.“
Hann segir að á þeim tímapunkti hafi verið komin gróf mynd af því hvar þeir látnu voru í húsinu.
Á sjöunda tímanum í gærkvöldi fór aðgerð af stað það sem slökkviliðsmenn voru sendir inn í húsið til að koma þeim látnu út. Þeir notuðust við körfubíla til að komast inn um glugga í risinu.
Aðspurður hvor að þá hafi verið mikil hætta á að gólfið myndi gefa sig segir Jón Viðar: „Já, það var hætta á því en við festum línu í menn þannig að ef gólfið hrynur undan þeim þá fara þeir ekki langt.
Jón Viðar segir verkefnið hafa verið afar erfitt þegar ljóst var að einhverjir væru inni í húsinu. „Hugur okkar er hjá fólkinu sem slapp úr húsinu og aðstandendum þeirra sem létust. Núna einblínum við á að halda utan um okkar starfsfólk.“
Jón Viðar segir fagleg vinnubrögð við erfiðar aðstæður hafa einnkennt vinnu samstarfsfólks síns í gær. „Það voru engin læti í fólki. Fólk gekk bara í sín verkefni eins og það er þjálfað í.“