Lokaþátturinn af 17 seríu raunveruleikaþáttarins Keeping Up With the Kardashians var sýndur í gær. Þátturinn hefur vakið mikla athygli en í honum fengu áhorfendur að sjá meðlimi Kardashian og Jenner fjölskyldunnar gera stólpagrín að hvor annarri.
Kourtney Kardashian brá sér í hlutverk Kim Kardashian á meðan Kim hermdi eftir Kourtney með góðum árangri.
Khloe tók mömmu sína Kris fyrir og öfugt. Þá ákvað Kendall að leika Kylie sem sló í gegn.
Raunveruleikastjörnurnar hafa birt myndband af þeim í hlutverkunum sem hefur vakið mikla lukku. Það má sjá hér fyrir neðan.
https://www.instagram.com/p/B6HZMU1ghgb/