Mun minna álag var á lögreglunni þessa helgina en þær síðustu. Skemmst er þess að minnast að ekki vannst lögreglu tími síðustu helgi til þess að rita í dagbók lögreglunnar vegna mikilla anna.
Hrikalega mikið álag hefur verið á lögreglunni síðasta sólarhringinn – Allir fangaklefar fullir
Ósjálfbjarga vegna ölvunar
Fangaklefar voru til að mynda allir fullir á sama tíma fyrir viku síðan en einungis þurfti að hafa afskipti af einum aðila sem tengja má við skemmtistaði en tóku nýjar reglur opnunartíma skemmtistaða gildi á miðnætti. Atvikið átti sér stað um klukkan 23:00, Sá aðili sem þurfti að hafa afskipti af hafði sofnað öldauða á einum skemmtistað í miðborginni og var sá aðili með öllu ósjálfbjarga, sá fékk að gista fangaklefa lögreglunnar þar til af honum rennur.
Mikill erill hjá lögreglu og slökkviliði höfuðborgarsvæðisins síðasta sólarhringinn
Ökumenn undir áhrifum
Tilkynningar um ölvunarakstur eða akstur undir áhrifum fíkniefna, voru í miklum meirihluta þeirra tilkynninga sem bárust til lögreglu í gærkvöld og nótt.
Aðeins var tilkynnt um eitt innbrot síðdegis í gær og átti það sér stað í miðbænum.