Gísla Hauksson, annar stofnandi Gamma, er sakaður um að hafa beitt fyrrverandi sambýliskonu sína grófu ofbeldi árið 2020 en atvikið á að hafa átt sér stað á heimili þeirra. Gísli hefur verið kærður og mun málið verða þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur síðar í þessum mánuði.
Gísli er sakaður um að hafa tekið fyrrverandi sambýliskonu sína kverkataki, skellt henni utan í vegg og gripið um háls hennar svo hún átti erfitt með að ná andanum. Sambýliskonan hafi þá reynt að komast undan en er hann sagður hafa farið á eftir henni og gripið um handleggi hennar og fleygt henni á rúm. Konan tognaði og hlaut ofreynslu á brjósthrygg og hálshrygg, auk annara yfirborðsáverka víða um líkamann. Brotið varðar allt að sex ára fangelsi en konan krefur Gísla einnig um þrjár milljónir í miskabætur.