„Ekkert nema ást og hlýja frá mér til Gunnars Braga,“ segir Gísli Marteinn Baldursson, sjónvarpsmaður sem nú lýsir Eurovision-keppninni frá Rotterdam. Gísli Marteinn var beinskeyttur þegar hann kynnti Ísrael til leiks í gærkvöld. „Við fáum hér eldvörpur og sprengjur, en áberandi minna en áður hjá Ísraelsmönnum. Hugsanlega uppteknir við að beina sprengjunum í aðrar áttir þessa dagana,“ sagði Gísli í útsendingunni.
Gunnar Bragi tók málið upp í umræðu um styrki til fjölmiðla á Alþingi í gær og sagði að um væri að ræða áróður. „Þar hefur komið í fréttir að þulur ríkisútvarpsins ákvað að nota tækifærið og beita pólitískum áróðri í starfi sínu þar,“ sagði Gunnar Bragi og visir.is vitnar til.
Gísli Marteinn var með rólegasta móti í morgun þrátt fyrir fordæmingu Miðflokksins og sagðist hafa fengið „endalaust af jákvæðum skilaboðum“. Hann ítrekaði hlýju sína í garð Gunnars Braga. Íslenska lagið verður kynnt til leiks í seinni undanúrslitunum á fimmtudag. Gísli verður þá við hljóðnemann sem áður og hrærir upp í tilfinningum landsmanna með hnytttnum athugasemdum. Fólk bíður spennt efgtir næstu athugasemdum hans og viðbrögðum hinna vipðkvæmu og sómakæru.
Veðbankar hallast að því að Daði og Gagnamagnið nái áfram í aðalkeppninna á laugardag.