Gísli Örn Lárusson, athafnamaður og frumkvöðull, er látinn. Gísli var einn af stofnendum SÁÁ ásamt Björgólfi Guðmundssyni og fleirum
Gísli Örn fæddist 5. mars 1948 í Reykjavík. Hann lést 27. desember á hjúkrunarheimilinu Grund.
Morgunblaðið segir frá andláti hans í dag og rekur æviferil hans. Foreldrar hans voru hjónin Lárus Bjarnason, sem starfaði í sjávarútvegi, og Astrid Ellingsen prjónahönnuður. Gísli Örn ólst upp í Vesturbænum. Hann gekk í Melaskóla og Hagaskóla. Að loknu verslunarskólanámi í Bodö í Noregi hóf Gísli nám í vátryggingarfræðum í London þar sem hann starfaði hjá vátryggingarfyrirtækjum um tveggja ára bil áður en hann snéri aftur heim til Íslands.
Árið 1974 stofnaði Gísli Reykvíska endurtryggingu ásamt Almennum tryggingum og varð forstjóri þess félags aðeins 26 ára gamall. Hann tók síðar yfir hlut Almennra ásamt hópi fjárfesta. Hann rak félagið til 1992 þegar sænski vátryggingarrisinn Skandia keypti Reykvíska endurtryggingu. Þá lét Gísli til sín taka í flugrekstri og fiskeldi og starfaði á alþjóðavettvangi við fjármálaráðgjöf.
Gísli var kjörinn „Viðskiptamaður ársins“ árið 1992 fyrir framlag sitt til íslensks atvinnulífs.
Árið 1971 kvæntist hann Guðbjörgu Jóhannesdóttur. Þau eiga saman dæturnar Hildi Ýri, Erlu Hrund og Dagnýju Rut. Þau skildu. Með seinni konu sinni, Valgerði Geirsdóttur, átti hann dótturina Emilíu Björt. Þau skildu.
Gísli Örn breytti alveg um lífsstíl þegar næstyngstu dóttur hans var vart hugað líf en læknaðist. Hann endurskoðaði líf sitt, fór að
stunda jóga og hugleiðslu, og stofnaði síðan náttúrulækningafyrirtækið Omni Cure.