Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, hefur byggt upp stemmningu meðal síns fólks og stefnir ótrauð í blóðugan slag. Málflutningur hennar einkennist af slagorðum sem falla vel að smekk félagsmanna sinna. Efling heldur úti skæruverkföllum gegn einstökum fyrirtækjum en hefur forðast að kalla eftir afstöðu félagsmanna varðandi allsherjarverkfall félagsins.
Nýjasta útspil atvinnurekenda er að óska eftir heimild til þess að efna til verkbanns á alla félaga Eflingar. Sólveig Anna var fljót að gefa þeirri fyrirhuguðu aðgerð einkunn. Þetta er glæpur gegn Eflingafólki. Skæruverkföllin eru aftur á móti lögleg og framkvæmd af sanngirni og velvilja.
Kenningar eru uppi um að sú verkbannið sér úthugsuð leið Halldórs Benjamíns Þorbergssonar og atvinnurekenda til þess að búa til útgönguleið fyrir Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra sem megi ekki hugsa til þess að setja bráðabirgðalög á Eflingu. Öðru máli gegnir ef setja þarf lög á báðar stríðandi fylkingar …