Við erum ótrúlega ánægð með útkomuna,“ segir Sólrún Diego, markaðsstjóri, hjá Bíumbíum og Von verslun. En núna nýverið þá sameinuðust þessar verslanir undir sama þaki í Síðumúla 21, þar sem Bíumbíum var áður til húsa. Húsnæðið var stækkað og fékk heilmikla upplyftingu
Að sögn Sólrúnar er mikið lagt upp úr persónulegri þjónustu, ráðgjöf og aðstoð við viðskiptavini. Fjölbreytt og fallegt úrval er af viðarleikföngum, húsgögnum og fatnaði frá þekktum vörumerkjum.
Mikið er lagt upp úr endingargóðum og umhverfisvænum vörum á börn allt frá fæðingu til 16 ára aldurs.