Nóttin var róleg hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Gleðifólk virðist ýmist hafa haldið kyrru fyrir eða hagað sér vel. Skýringin á rólegheitunum þann líka að vera sú að liðið er á mánuðinn og pyngjan tekin að léttast hjá sumum þeirra sem annars færu mikinn í næturlífi borgarinnar.
Talsvert uppnám varð eftir að krakkar gerðu sér að leik að kveikja á flugeldum á leikvelli í Breiðholti. Eldur kviknaði vegna þessa athæfis en engin slys urðu á fólki.
Eitt innbrot var framið í heimahús í austurborginni. Ekki liggur fyrir hvert tjónið er. Málið í rannsókn. Á svipuðum slóðum var tilkynnt um árekstur. Annar aðilinn stakk af frá vettvangi og er hans leitað. Málið í rannsókn.
Ökumaður sem stöðvaður var við akstur bifreiðar reyndist vera án gildra ökuréttinda.
Enn eitt slysið varð þar sem einstaklingur hafði fallið af rafhlaupahjóli og slasast við það. Hann var fluttur á slysadeild til aðhlynningar.
Bifreið hafsnaði utanvegar í Kópavogi. Ökumaðurinn, sem slapp ómeiddur, hafði þá skýringu að hann hefði sofnað undir stýri. Bifreiðin reyndist vera talsvert skemmd og var flutt á brott með dráttarbifreið. Engin meiðsli.