Gleðipinnar ehf. og Hreyfill hafa sent frá sér tilkynningu vegna pistils sem birtist í Fréttablaðinu í morgun. Í umræddum pistli sakar höfundurinn, Ævar Gleðipinna ehf. um „gróft ásetningsbrot“ með heimsendingarþjónustu sinni sem er unnin í samstarfi við Hreyfil. Ævar spyr hvar eftirlitið sé og varpar þeirri spurningu fram hver ábyrgð veitingastaða sé beri þeir COVID-19 smit á milli húsa með heimsendum mat.
Í samtali við Mannlíf segir Jóhannes Ásbjörnsson, markaðsstjóri Gleðipinna, samstarf Gleðipinna og Hreyfils vera unnið í samvinnu við Heilbrigðiseftirlitið til að tryggja öryggi viðskiptavina og starfsfólks. „Við hefðum ekki farið af stað með þetta öðruvísi,“ segir Jóhannes.
Í tilkynningu Gleðipinna og Hreyfils er heimsendingarferlinu lýst og þau atriði talin upp sem eiga að tryggja öryggi viðskiptavina.
Tilkynningu Gleðipinna og Hreyfils í heild sinni má sjá hér fyrir neðan. Það eru þeir Jóhannes og Haraldur Axel Gunnarsson, framkvæmdastjóri Hreyfils, sem senda tilkynninguna.
Í Fréttablaðinu, fimmtudaginn 23. apríl, varpar Ævar Ingi Pálsson, pípulagningarmeistari og matargat, fram spurningu um ábyrgð veitingastaða á tímum Covid-19. Ævar nefnir sérstaklega samstarf Gleðipinna og Hreyfils um heimsendingar í því samhengi. Þessi spurning á fullan rétt á sér og ekkert nema sjálfsagt að varpa ljósi á það hvernig Gleðipinnar og Hreyfill standa að sínum málum.
Samstarf Gleðipinna og Hreyfils er unnið í samráði við Heilbrigðiseftirlitið sem hefur fengið allar upplýsingar um heimsendingarferlið. Heilbrigðiseftirlitið á hrós skilið fyrir fyrir að fræða og styðja við veitingamenn þegar kemur að útfærslu á þeim dreifileiðum sem hafa verið notaðar í meiri mæli en áður sökum ástandsins sem við höfum búið við undanfarnar vikur.
Hér að neðan er stutt samantekt yfir það hvernig við tryggjum öryggi okkar matvæla:
- -Gleðipinnar bjóða snertilausar greiðslur á öllum sínum stöðum og leitast við að lágmarka alla snertifleti í þjónustuferlinu.
- -Umbúðir sem notast er við í heimsendingum uppfylla öll nauðsynleg skilyrði og hafa verið notuð í „Take away“ um árabil.
- -Heimsending er aðeins í boði í gegnum síma og greitt er með símgreiðslu.
- -Bílstjóri hringir ávallt í viðskiptavin þegar hann er kominn á afhendingarstað og fær upplýsingar um hvort skilja eigi matinn eftir við dyr.
- -Bílstjórar eru ekki neinum samskiptum við eldhús veitingastaðanna.
- -Tryggt er að flutningur taki ekki lengri tíma en 30 mínútur.
- -Allur búnaður sem notaður er til eldamennsku og í heimsendingarferlinu er sótthreinsaður með reglubundnum hætti.
- -Aðeins leigubifreiðar með tilskilin leyfi hjá Hreyfli sendast með mat og eru allir bílar sótthreinsaðir með reglubundum hætti.
- -Bílstjórar hafa fengið upplýsingar um hvernig meðhöndla skuli matarsendingar og fylgir Hreyfill öllum fyrirmælum og leiðbeiningum Sóttvarnarlæknis og yfirvalda varðandi einkenni Covid-19 og annarra veikinda.
- -Maturinn er fluttur í framsæti leigubifreiðanna sem er ekki notað fyrir farþega um þessar mundir sökum 2 metra reglunnar.
- -Bílstjórar taka aldrei við greiðslu frá viðskiptavinum þar sem gengið hefur verið frá greiðslu fyrirfram í gegnum síma.
- -Á Hreyfli starfa sérstakir eftirlitsmenn sem skoða leigubílana með reglulegum hætti með tilliti til þrifa sem og ástands þeirra.
- -Handspritt er í öllum leigubifreiðum Hreyfils
Gleðipinnar og Hreyfill vilja þakka frábærar viðtökur viðskiptavini við samstarfinu. Í okkar huga er það gott dæmi um það hvernig fyrirtæki snúa bökum saman og hugsa í lausnum á “fordæmalausum tímum” sem þessum. Við óskum ykkur öllum gleðilegs sumars.