Glúmur Baldvinsson er maður sem ekki liggur á skoðunum sínum, og getur einnig verið bráðfyndinn, ef sá gállinn er á honum.
Hann ræðir mál Eflingar og afsögn Sólveigar Önnu Jónsdóttur. Glúmur skrifar:
„Liggur þá ekki beinast við að Gunnar Smári verði næsti formaður Eflingar?“ spyr Glúmur glettnislega og svarar í raun sjálfum sér:
„Sólveigu tókst að gera allt vitlaust í sósíalistahreyfingunni á 2 árum. GSE gæti hæglega slegið það met á tveimur mánuðum,“ segir Glúmur og skýtur hressilega á stjórnmálafólk á vinstri vængnum:
„Þetta fólk verður að læra af átrúnaðargoði sínu Stalín sem kálaði öllum í uppreisn og sat í næstum 30 ár. Innbyrðis óeirðir og deilur skilgreina últra vinstrið. Verst að Stalín er ekki lengur hér. Því þegar öllu er á botninn hvolft snýst þetta bara um peninga og völd. Good luck.“