Glúmur Baldvinsson veltir fyrir sér bólusetningum vegna Kóvid og segir:
„Um ævina hef ég fimm sinnum fengið flensu og ekkert vandamál. Svo ríður C19 yfir heimsbyggðina og ég las í fréttum að nánast allir nema ég smituðust.“
Bætir við:
„Ég var farinn að halda að þessi andskoti ætti ekkert erindi við mig eða mína.“
Svo var ekki:
„Svo er ég kallaður í bólusetningu, ekki eina heldur þrjár. Og þegar ég spurði af hverju var mér sagt að þetta væri gert til að koma í veg fyrir smit sem ég hafði aldrei fengið.“
Segir svo:
„En viti menn, eftir þrjár bólusetningar og endalok faraldursins hef ég fengið C19 þrisvar á síðustu fimm mánuðum. Og nú síðast í fyrradag á leið heim frá Kanaríeyjum. Ég er ekki að fara að drepast úr þessu en þetta er orðið djöfulli pirrandi. Þrjár bólusetningar til einskis.“
Spyr um kjarna málsins:
„Hvað má èg eiga von á mörgum smitum af þessu kvikindi næstu fucking árin? En kjarni málsins er: Til hvers allar þessar helvítis bólusetningar?“