- Auglýsing -
Rússar telja sig hafa fundið svarið við kórónuveirunni og hafa fengið fyrsta bóluefnið gegn COVID-19 skráð. Efnið er sagt veita varanlegt ónæmi fyrir kórónuveirunni. Forseti landsins, Vladimír Pútín, tilkynnti þetta formlega nú í morgun en Rússar hafa verið gagnrýndir fyrir að flýta rannsóknum um of á kostnað áreiðanleika bóluefnisins. Framundan er fjöldaframleiðsla efnisins í Rússlandi og stefnt er á bólusetningar í október.
Á kynningarfundi fyrir fjölmiðla státaði Pútín sér af því að Rússar væru fyrstir sem fram koma með bólefni gegn Covid-19. Þar sagði hann að heilbrigðisstarfsmenn, kennarar og fólk í áhættuhópum verði fyrstir til að verða bólusettir í landinu en forsetinn tók það einnig fram að önnur dóttir sín hafi verið í hópi fyrstu viðtakanda bóluefnisins og að henni liði vel eftir bólusetninguna.
Talið er að meira en 20 bóluefni séu í þróun víða í veröldinni en íslensk stjórnvöld bíða eftir góðu og öruggu bóluefni í samstarfi við stjórnvöld norðurlanda og ríki Evrópusambandsins.