Ný skoðanakönnun leiðir í ljós að einungi sex prósentum Grænlendinga hugnast að ganga Bandaríkjunum á hönd. Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur ítrekað látið í ljósi áhuga á að „eignast Grænland“. Sonur forsetans. Donald Trump yngri fór mætti til Nuuk á Grænlandi á einkaþotu föður síns. Tilgangurinn var að talið er sá að undirstrika ósk föður síns um að eignast landið sem býr yfir gríðarlegum auðlindum til lands og sjávar og er hernaðarlega mikilvægt. Í skoðanakönnuninni, sem danska tímaritið Berlinske gerði á meðal Grænlendinga. kom í ljós að 85 prósent þjóðarinnar vilja alls ekki að land þeirra verði hluti af Bandaríkjunum. Aðeins sex prósent eru hlynnt því að Grænland verði hluti af Bandaríkjunum. Þessi niðurstaða gengur þvert á þær yfirlýsingar Trump að Grænlendingar vilji láta innlima sig í Bandaríkin.
Innan Grænland er orðin mikil andstaða við að vera undir Danmörku. Það er mat margra að Danir sitji að mörgum bestu störfunum á Grænlandi og undiroki þjóðina. Sjálfstæðissinnum hefur fjölgað mjög undanfarin ár og Dönum er sífellt gert erfiðara fyrir að halda fullri stjórn á landinu.
Helmingur þeirra sem tóku þátt í könnuninni sjá tækifæri í áhuga Trump á Grænlandi. Þar liggur að baki að Grænlendingar eigi meiri líkur á auknu sjálfstæði og Danir neyðist til að slaka á klónni og gefa þjóðinni meira eftir.