Samgönguöryggisráð Bandaríkjanna (NTSB) rannsakar nú orsök þyrluslyssins sem varð á sunnudaginn í Kaliforníu þar sem níu manns létust, meðal annars körfuboltamaðurinn Kobe Bryant og 13 ára dóttir hans, Gianna.
Í frétt CNN segir að þyrluflugamaðurinn sem flaug þyrlunni hafi greint flugumferðarstjórn að hann væri að hækka flugið til að forðast þoku og ský en afar slæmt skyggni var í Kaliforníu þegar slysið varð. Þetta er meðal þess sem kom fram í síðustu samskiptum flugmannsins við flugumferðarstjórn.
Þegar flugumferðarstjórn óskaði eftir frekari upplýsingum frá flugmanninum kom ekkert svar. Þessu greindu NTSB frá í gær.
Jennifer Homendy, nefndarmaður í NTSB, segir að á meðan á samtali flugmannsins við flugumferðarstjórn hafi staðið hafi hann fengið fyrirmæli um að bíða með að halda flugi áfram. Flugmaðurinn sveimaði í hringi í um 12 mínútur áður en fluginu far haldið áfram.
Homendy greindi þá frá því að síðustu samskiptin hefðu átt sér stað klukkan 9:45 að staðartíma. Klukkan 10:00 hrapaði þyrlan í útjaðri Los Angeles.
Hópurinn var á leið til Thousand Oaks þar sem Gianna átti að spila á körfuboltaleik.