Sigurður Þ. Ragnarsson veðurfræðingur, betur þekktur sem Siggi Stormur, spáir fínu veðri í júní. „Suðurhluti landsins verður hins vegar nær því að vera meðal-júnímánuður. Hvað hitann snertir, heilt yfir séð í júní, er hann bara góður en ekkert meira en það bæði norðan og sunnan heiða,“ sagði Siggi í viðtali við Fréttablaðið.
„Svona til að fóta sig í þessu þá er júní að jafnaði næst þurrasti mánuður ársins, næstur á eftir maí, bæði norðan og sunnan heiða.“
Meðalhámarkshiti í Reykjavík í júní er 11,7 gráður en 13,2 gráður á Akureyri.
Ef marka má spá Veðurstofu Íslands geta landsmenn búið sig undir rigningu næstu daga, sérstaklega á sunnanverðu landinu. Búist er við rigningu á höfuðborgarsvæðinu frá fimmtudegi til sunnudags en bjartara veður á landinu austan til. Hiti verður á bilinu 8 til 16 stig.