- Auglýsing -
Sænski loftlagsaðgerðasinninn Greta Thunberg er manneskja ársins 2019 hjá bandaríska tímaritinu Time. Greta er 16 ára og er yngsta manneskjan sem valin hefur verið sem manneskja ársins í 96 ára sögu tímaritsins.
Greta hefur orðið heimsfræg á skömmum tíma fyrir eldmóð sinn hvað umhverfismál varðar og gagnrýni sína á aðgerðaleysi stjórnvalda í loftslagsmálum.
Greta er þessa stundina stödd á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, COP25, í Madríd.