Heilbrigðisráðherra, Svandís Svavarsdóttir, tilkynnti eftir fund ríkisstjórnarinnar í dag að öllum sóttvarnaaðgerðum verði aflétt á næstu fjórum vikum.; á miðnætti verður grímuskylda með öllu aflétt.
Þá sagði Svandís að tvö þúsund manns megi koma saman og opnunartími skemmtistaða lengist um einn klukkutíma; mega hafa opið til tvö eftir miðnætti.
Í samtali við RÚV sagði Svandís þetta að loknum fundinum:
„Við þurfum að læra af reynslunni og við höfum verið að aflétta í skrefum í faraldrinum. Nema í júlí, þegar við tökum þetta stóra skref og erum enn að bíta úr nálinni með það. Þetta er nánast full aflétting og mjög lítið sem stendur út af.“
Einnig sagði Svandís að full sátt væri um málið hjá ríkisstjórninni og stefnan væri að aflétta öllum takmörkunum vegna Covid 19 eftir fjórar vikur.