Um 30 fjölskyldur í Grindavík sneru heim í hús sín um áramótin og sváfu þar. Spádómar um yfirvofandi gos og jarðhræringar hafa engin áhrif í þá veru að halda þeim að heiman. Þetta er þvert á ráðgjöf Úlfars Lúðvíkssonar lögreglustjóra á Suðurnesjum sem ráðleggur fólki að halda ekki til í bænum. Lögreglustjórinn vísar til landriss við Savrtsengi og yfirvofandi goss þar eða á svæðinu við Hagafell og Stóra-Skógfell.
Fyrirtæki í Grindavík hafa sum hafikð starfsemi að nýju og önnur eru að undirbúa það að hefja vinnslu að nýju.
Úlfar upplýsir við Morgunblaðið að fólki verði ekki bannað að dvelja í bænum. Allar leiðir að’ Grindavík eru vaktaðar allan sólarhringinn og öðrum en Grindvíkingum er meinaður aðgangur að Grindavík og stóru svæði í kringum bæinn. Varðstöðvarnar eru mannaðar.