Guðbergur Bergsson er látinn. Hann fæddist 16. október árið 1932 og ólst upp í Ísólfsskála. Hann var á meðal þekktastu rithöfunda landsins. Eftir hann liggur fjöldi bókmenntaverka á borð við skáldsögur og smásögur. Þekktasta verk hans er Tómas Jónsson, mertsölubók sem kom út árið 1966.
Hann lét sig þjóðfélagsmál miklu varða og skrifaði fjölda greina um margvísleg efni. Hann var óhræddur við að láta skoðandir sínar í ljós, umbúðlaust.
Guðbergur er margverðlaunaður fyrir verk sín sem hafa verið þýdd á fjölda tungumála oog notið mikilla vinsælda. Þá var hann afkastamikill þýðandi og þýddi fjölda verka úr spænsku. Hann hefur í tvígang fengið íslensku bókmenntaverðlaunin.
Guðbergur var 91 árs þegar hann lést á mánudag í faðmi fjölskyldu sinnar.