Guðbjörg Matthíasdóttir, aðaleigandi Ísfélagsins í Vestmannaeyjum, datt heldur betur í lukkupottinn á aðventunni þegar samkomulag náðist um að félaga hennar eignaðist Ramma á Siglufirði. Guðbjörg er einnig aðaleigandi Morgunblaðsins sem upplýsti að eigendur Ísfélagsins ættu tæplega 70 prósent í sameinuðu félagi. Áform eru um að Ólafur Marteinsson, fráfarandi forstjóri Ramma, verði útibússtjóri á Siglufirði en Stefán Friðriksson, framkvæmdastjóri Ísfélagsins, leiði hið nýja félag. Ástæðan fyrir sameiningunni er sögð vera sú að félagið eigi að fara á markað.
Með þessu þykir sýnt að kvóti og skip muni flyjast að miklu leyti frá Siglufirði og til Vestmannaeyja þótt annað sé látið í veðri vaka. Reynslan af sameiningum sjávarútvegsfyrirtækja er gjarnan sú að stóru fiskarnir éta litlu fiskanna. Fræg ummæli Þorsteins Más Baldvinssonar voru þau að Guggan yrði áfram gul og gerð út frá Ísafirði. Blekið á samningum og yfirlýsingu var varla þornað þegar sú yfirlýsing var ómerk …