ORÐRÓMUR Fréttatilkynning Samherja í Morgunblaðinu um að mútumálið í Namibíu feli ekki í sér arðrán af hendi stjórnenda félagsins hefur vakið mikla athygli og ýfingar. Hallgrímur Helgason rithöfundur gefur til kynna í færslu að Árvakur, útgefandi Morgunblaðsins, sé í eigu glæpamanna. Hann skrifar á síðuna Fjölmiðlanörda á Facebook og DV vitnar til: „Gott að eiga fjölmiðil ef maður er glæpon!“. Stefán Stefánsson, blaðamaður Moggans, bregst ókvæða við og svarar Hallgrími með hrakyrðum um að skáldið sé léttvægt.
Ekki er ljóst hvort Hallgrímur á við að Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, sé eigandinn og glæpamaðurinn. Vandinn er þá sá að Samherji á ekki lengur hlut í Mogganum. Fyrirtækið setti léttvægan hlutinn í félag sem heitir Kattarnef og framseldi það til Eyþórs Arnalds borgarfulltrúa gegn greiðslu. Þá liggur fyrir að engir kærleikar eru á milli Samherja og Moggans. Óskar Magnússon, stjórnarformaður, var á sínum tíma flæmdur úr starfi útgefanda að undirlagi Davíðs Oddssonar ritstjóra.
Ráðandi aðili í eigendahópi Moggans er Guðbjörg Matthíasdóttir, aðaleigandi Ísfélagsins í Vestmannaeyjum og fjölmargra fleiri fyrirtækja, sem hefur lagt til rekstarfé. Langsótt er að halda fram að hún sé misyndismanneskja. Davíð situr í skjóli hennar.