Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra bendir á eðlilega en um leið mikilvæga staðreynd á Facebook-síðu sinni í dag. Þar segir hann að hann sem og við öll getum tileinkað okkur hátt Ölmu Möller landlæknis, að hrósa.
„Við munum eflaust læra margt af þessum sögulegu tímum, sumt meðvitað og annað ómeðvitað. Sá háttur Ölmu landlæknis, að hrósa, er t.a.m. eitthvað sem við ættum öll að tileinka okkur í meira mæli,“ segir Guðlaugur Þór.
Notar hann tækifærið og þakkar sínu fólki.
„Ég var gestur Í bítið á Bylgjunni í morgun og fór þar yfir það hvernig stærstur hluti starfsemi utanríkisþjónustunnar breyttist í borgaraþjónustu nánast á einni nóttu. Það hefur öllu máli skipt í þeirri gríðarlega mikilvægu vinnu að koma Íslendingum erlendis til aðstoðar, að geta reitt okkur á frábæra samstarfsfólkið okkar, bæði heima og heiman. Starfsfólkið hefur sýnt það og sannað hversu fljót þau eru að aðlaga sig að nýjum aðstæðum og verkefnum, og hafa unnið afar óeigingjarnt starf og mjög langa vinnudaga.
Við fólkið mitt vil ég því segja: takk!“